Stuðlagil og Mývatnssveit 11. júní & 23. júlí
TTV-102 Stuðlagil og Mývatnssveit 11. júní & 23. júlí
Ferðin hefst kl 8:00
laugardaginn 11. júní og 23. júlí
Brottför frá menningarhúsinu Hofi Akureyri
Áætluð ferðalok kl 20:00 við Hof
Leiðsögn á íslensku og ensku (ef þarf)
Verð 15.000 kr á mann
Viðkomustaðir:
- Goðafoss
- Mývatnssveit
- Skjöldólfsstaðir
- Stuðlafoss
- Stuðlagil
- Jarðböðin við Mývatn
Gott að hafa með:
- Góða gönguskó
- Nesti
- Fatnað sem hæfir veðri
- Sundföt og handklæði
- Drykki og vatnsbrúsa
Stuðlagil og Mývatnssveit er óþarfi að kynna, en þessir tveir staðir eru samt bara tveir af fjölmörgum fallegum náttúruperlum sem við heimsækjum í þessari einstöku dagsferð. Við byrjum daginn snemma og leggjum af stað frá Akureyri kl 8:00. Þaðan er ekið rakleitt austur á Jökuldal með viðkomu á Skjöldólfstöðum þar sem hægt verður að kaupa hádegishressingu. Þaðan ökum við að Klausturseli og að Stuðlafossi. Frá fossinum er um 6 km ganga inn að Stuðlagili sem er eitt það fallegasta árgil á Íslandi. Frá Jökuldal er ekið til baka upp í Mývatnssveit og stoppað í Jarðböðunum í góða klukkustund áður en við klárum hringferðina um Mývatn og höldum til Akureyrar. Áætlaður komutími til Akureyrar er kl 20:00
Bókið í dag á 15.000 iskr
Við ökum svo að Klausturseli á Jökuldal. Til að komast að Stuðlagili að austanverðu þarf að ganga frá Stuðlafossi og inn að Stuðlagili, fallegu árgili Jökulsár á Brú. Jökla er sakleysisleg og falleg á að líta yfir sumartíman meðan vatn er að safnast fyrir í Hálslóni uppi á hálendi landsins. Einmitt þess vegna er nú aðgengilegt að komast alveg ofan í Stuðlagil og njóta fegurðar stuðlabergsins sem er einstaklega fallegt á þessum stað. Vert er að benda fólki á að vera í góðum skófatnaði og hafa með sér vatn á flösku til göngunnar sem er tiltölulega létt en er þó um 6 km löng.
Frá Klausturseli liggur leið okkar til baka og við komum næst að Jarðböðunum í Mývatnssveit eftir stutt stopp á Hverarönd. Jarðböðin er löngu landsþekkt og hvað er betra en að njóta þess að láta þreytuna líða úr sér í heitum böðunum eftir gönguna að Stuðlagili. Í Jarðböðunum er einnig veitingasala þar sem hægt er að fá sér bæði léttar veitingar sem og góða máltíð áður en við keyrum til Akureyrar en núna suður fyrir Mývatn til að njóta sem best fegurðar Mývatnssveitar á leiðinni heim.